Flík og fat – rusl og drasl?
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort
mán. 14.09.2026 16:30
div class="text">Hvað verður um allan þennan fatnað, textíl og fleira sem við hættum að nota og ýmist hendum eða sendum áfram í endurvinnslu eða aðra nýtingu? Fer þetta í brennsluofninn eða á hauga í fjarlægum löndum? Hvernig getum við nýtt og notað betur það sem við höfum?
Þessum og fleiri spurningum veltir Freyr Eyjólfsson fyrir sér í spjalli um það hvernig við getum bætt líf okkar og heiminn í leiðinni enda hringrásarhagkerfið einfaldasta, áhrifaríkasta og ódýrasta loftlagsaðgerðin. Breytt hugsun og hegðun í þá átt getur gert líf okkar betra. Hringrásarhagkerfið snýst líka um þjóðaröryggi, hagkvæmni, sjálfbærni og lýðheilsu.
Frey Eyjólfssyni er margt til lista lagt, hann er m.a. tónlistarmaður, fjölmiðlamaður og verkefnastjóri hjá Sorpu auk þess sem hann er forfallinn hringrásarhagkerfispeppari.
Borgarbókasafnið er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.
Sjá nánar hér: www.borgarbokasafn.is/hvad-er-make-thek
Nánari upplýsingar:
Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Árbæ
Katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | 411 6250
Freyr Eyjólfsson, verkefnastjóri fræðslu og kynninga hjá Sorpu
freyr.eyjolfsson@sorpa.is | 699 6434
Flytjendur
-
Freyr Eyjolfsson
Fundarstjóri
-
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur leggur rækt við mannlífið í borginni á fjölbreyttan hátt.