Landshlutaheimsókn á Suðurlandi - grunnskólar
Félagsheimilið Leikskálar, Víkurbraut 8, 870 Vík Kort
fim. 20.08.2026 10:30
Hagnýtt námskeið í kennslu íslensku sem öðru máli (ÍSAT) þar sem fjallað er um móttöku, kennslu ÍSAT og mikilvæga þætti tungumálanáms auk þess sem fjölmörg verkfæri, námsgögn og aðferðir eru kynnt. Þátttakendur fá einnig tækifæri til að ræða saman og deila reynslu sinni af kennslu ÍSAT. Námskeiðið skiptist í fyrirlestra og hagnýtar vinnusmiðjur.
Markhópur: grunnskólakennarar sem kenna nemendum með íslensku sem annað tungumál og aðrir áhugasamir. Athugið að námskeiðið getur einnig nýst framhaldsskólakennurum.
Skráningarhlekkur: https://forms.cloud.microsoft/e/fBhEpcxGEt
Staðsetning: Félagsheimilið Leikskálar, Smiðjuvegur 7, 870 Vík
Flytjendur
-
Miðstöð menntunar og skólaþjónustuMiðstöð menntunar og skólaþjónustu stuðlar að framúrskarandi menntun og farsæld allra barna og ungmenna. Þetta gerir hún með öflugum stuðningi og markvissri þjónustu við leik-. grunn- og framhaldsskóla um land allt.