Lagasmiðja fyrir alla aldurshópa
Ein magnaðasta hljómsveit landsins, Korda Samfónía, býður fjölskyldum og einstaklingum á öllum aldri að taka þátt í ævintýralegri tónsmiðju þar sem hópurinn semur saman eitt stykki lag á 45 mínútum en lagið verður svo flutt á örtónleikum fyrir gesti og gangandi. Þátttakendum er velkomið að taka með sér órafmögnuð hljóðfæri. Bakgrunnur í tónlist er alls ekki skilyrði.
-
Korda Samfónía er óhefðbundnasta hljómsveit landsins þar sem saman koma einstaklingar á aldrinum 20 til 70+ ára, á ólíkum stöðum í lífinu og með ólíkar sögur að baki. Tilgangurinn með hljómsveitinni er að fólk fái tækifæri til að vinna saman að sköpun nýrrar tónlistar. Korda Samfónía hefur undanfarin ár haldið árlega vortónleika sína í Silfurbergi í Hörpu. Stjórnandi Kordu er Sigrún Sævarsdóttir Griffiths.
Flytjendur
-
Korda Samfónía
Óvenjulegasta hljómsveit landsins, samsett úr starfandi tónlistarmönnum, nemendum úr Listaháskóla Íslands, sjálfmenntuðu tónlistarfólki og fólki í endurhæfingu.