Hópferð Íslendinga á Wacken 2026

Hópferð Íslendinga á Wacken 2026

Wacken Open Air, Hauptstraße 82, 25596 Wacken Kort

þri. 28.07.2026 08:00

Hópferð á stærsta þungarokksfestival heims! Farið frá Kaupmannahöfn 28. júlí 2026. Verð frá: 4.654 DKK (miði og rúta)

Frekari upplýsingar:

Wacken Open Air er ein elsta og þekktasta þungarokkshátíð Þýskalands, sem dregur að sér á hverju ári mörg þúsund manns frá öllum heimshornum. Hátíðin, sem haldin er í smábænum Wacken í Norður-Þýskalandi, er fimm daga löng hátíð og fer fram dagana 28. júlí . - 2. ágúst 2026.

** HÓPFERÐ Á WACKEN - MEKKA METALSINS!

RestingMind Concerts hefur haldið utan um hópferð Íslendinga á þessa hátíð frá 2004 og ætlar að endurtaka leikinn næsta sumar, enda hafa náðst samningar við veðurguðina um alveg einstakt veður í ágúst - Alveg satt!

Um er að ræða hópferð með rútu frá Kaupmannahöfn og beint á Wacken svæðið. Þátttakendur sjá sjálfir um að koma sér til Danmerkur.

** HÁTÍÐ MEÐ UM 190 HLJÓMSVEITUM

Eftirtaldar hljómsveitir eru staðfestar fyrir festivalið núna í ár enn sem komið er, en ballið er bara rétt að byrja, því það verða um 180-190 sveitir á Wacken og síðustu sveitirnar verða líklega ekki staðfestar fyrr en nokkrum vikum fyrir festivalið eins og gengur og gerist með svona festivöl.

Def Leppard - Hard Rock

Judas Priest - Heavy Metal

Powerwolf - Power Metal

In Flames - Melodic Death Metal

Savatage - Heavy Metal

Arch Enemy - Melodic Death Metal

Saxon - Heavy Metal

Emperor - Symphonic Black Metal

Lamb Of God - Groove Metal

Running Wild - Heavy Metal - The Final Show

Airbourne - Hard Rock

Sepultura - Groove Metal

Europe - Hard Rock

Black Label Society - Southern Metal

Yngwie Malmsteen - Neoclassical Metal

5th Avenue - Hard Rock

9mm Headshot - Hard Rock

Ad Infinitum - Symphonic Metal

Alcest - Blackgaze

Alestorm - Folk Metal

Alfahanne - Melodic Black Metal/Rock

Alien Ant Farm - Alternative Rock

Alien Rockin‘ Explosion - Hard Rock

Allt - Metalcore

Anaal Nathrakh - Black Metal

Angelus Apatrida - Thrash Metal

Animals As Leaders - Progressive Metal

Any Given Day - Metalcore

Arroganz - Black Metal / Death Metal

Asrock - Hard Rock

Battlecreek - Thrash Metal

Bear McCreary - Film Soundtracks

Blaas Of Glory - Heavy Metal

Black Tish - Industrial Metal

Bleed From Within - Metalcore

Blood Command - Hardcore Punk

Blood Fire Death - Tribute To Bathory

Blood Red Throne - Death Metal

Broken By The Scream - Kawaii Metal

Brunhilde - Hard Rock

Castle Rat - Doom Metal

Chaosbay - Progressive Metal

Corrosion Of Conformity - Stoner Metal

Craft - Black Metal

Crematory - Gothic Metal

Crimson Glory - Heavy Metal

Cruachan - Folk Metal

Crypt Sermon - Epic Doom Metal

Cursed Abyss - Metalcore / Groove Metal

Danko Jones - Hard Rock

Deafheaven - Blackgaze

Diabolisches Werk - Death Metal

Dieter Birr - Rock

Dirty Shirt - Nu Metal

Divlje Jagode - Hard Rock

Dritte Wahl - Punk Rock

Dubioza Kolektiv - Reggae

Einherjer - Viking Metal

Electric Bassboy - Electric Callboy sideproject - Electronicore

Eläkeläiset - Humppa

Employed To Serve - Metalcore

Evil Jared & Krogi

Expellow - Metalcore

Faun - Medieval Rock

Finsterforst - Viking Metal

Firespawn - Death Metal

Fit For An Autopsy - Deathcore

Focus. - Punk Rock

Future Palace - Post-Hardcore

Grand Magus - Heavy Metal

Guilt Trip - Hardcore / Metalcore

Gutalax - Goregrind

H-Blockx - Rap Rock

Hackneyed - Death Metal

Hämatom - Groove Metal

Hardline - Hard Rock

Hatebreed - Metalcore

Heartless Human Harvest - Deathcore

Heavysaurus - Heavy Metal

Insanity Alert - Crossover Thrash

Kadavar - Stoner Rock

Kärbholz - Punk Rock

Katerfahrt - Mittelalter Rock

Kim Dracula - Alternative Metal

Kittie - Alternative Metal

Kupfergold - Folk

Lacuna Coil - Alternative Metal

Lagwagon - Skate Punk

Life Of Agony - Alternative Metal

Lovebites - Power Metal

Luna Kills - Alternative Rock

Mambo Kurt - Musical Parody

Mantar - Sludge Metal

Mantra - Progressive Metal

Metaklapa - Iron Maiden A cappella Tribute

Minotaurus - Folk Metal

Misery Index - Death Metal

Misþyrming + Nergal - Perform Sventevith

Mr. Hurley & Die Pulveraffen - Folk Rock

Municipal Waste - Crossover Thrash

Nevermore - Progressive Metal

Nothing More - Alternative Metal

Of Mice & Men - Metalcore

Orbit Culture - Melodic Death Metal

Our Promise - Metalcore

P.O.D. - Rap Rock

Paleface Swiss - Deathcore

Paradise Lost - Gothic Metal

Phantom - Thrash Metal

Pig Destroyer - Grindcore

Poison The Preacher - Thrash Metal

President - Alternative Metal

Ricky Warwick - Hardrock / Heavy Metal

Rose Tattoo - Hard Rock

Sacred Steel - Heavy Metal

Sagenbringer - Folk Metal

Skyline - Heavy Metal

Skynd - Industrial Metal

Spectral Wound - Black Metal

Stonem - Metalcore

Storm Seeker - Folk Metal

Subway To Sally - Medieval Metal

Temple Of The Absurd - Thrash Metal

Ten56. - Metalcore

The Butcher Sisters - Metalcore

The Gathering - Alternative Rock

The Hardkiss - Alternative Rock

The Haunted - Thrash Metal

The Limit - Hard Rock

The Other - Horror Punk

The Troops Of Doom - Death Metal

Therapy? - Alternative Rock

Thrown - Metalcore

Thundermother - Hard Rock

Thy Art Is Murder - Deathcore

Triptykon - Doom Metal

Trold - Folk-Metal

Turbonegro - Punk Rock

Tuxedoo - Metalcore

Uli Jon Roth - Hard Rock

Unzucht - Dark Rock, Metal

Vanir - Folk Metal

Velvet Rush - Hard Rock

Vended - Alternative Metal

Visions Of Atlantis - Symphonic Metal

Vogelfrey - Folk Rock / Metal

Wacken Firefighters - Metal Meets Brass

Wüstenberg - Folk Rock

Wytch Hazel - Heavy Metal

Year Of The Goat - Hard Rock

Zeltinger Band - Rock

** TÓNLEIKASVÆÐI

Á Wacken eru a.m.k. 8 svið. Þrjú aðalsvið sem heita Faster, Harder og Louder og svo eru hin WET Stage og Headbanger's Stage sem eru staðsett á Bullhead City svæðinu, Wackinger stage, Wasteland Stage og Welcome to the Jungle stage.

AÐBÚNAÐUR OG WORLD METAL CAMP

Aðbúnaður á svæðinu er til mikillar fyrirmyndar. Wacken er útihátíð, þar sem langflestir gista á tjaldsvæði sem er alveg við tónleikasvæðið. Íslendingahópurinn tjaldar t.d. í hinum frábæra World Metal Camp sem hóf göngu sína á 2018 hátíðinni. Þetta er sérstakt tjaldsvæði þar sem aðilar sem sjá um hinar ýmsu hópferðir koma saman og eiga sinn frátekna skika. WMC kampurinn er reistur af Wacken og þeir skaffa risastórt partýtjald með rafmagni (hægt að hlaða símana sína og plögga hátölurunum sínum í samband), ásamt því að skaffa nokkra frysti- og kæliskápa þannig að fólk getur kælt bjórinn sinn og veitingar.

Hið besta þó við kampinn og skika Íslendinganna er að við erum á einum allra besta staðnum á öllu Wacken tjaldsvæðinu, einungis um 2-300m frá tónleika/festivalsvæðinu (Wacken Plaza). Ennfremur er vatnsklósett og sturtukamp að finna í ca 200m fjarlægð frá okkur.

MARKAÐUR

Fyrir þá sem vita ekki hvað gera á við peningana sína, þá er hægt að versla sér allan þann hugsanlega varning sem gæti tengst þungarokki og útihátíð á einhvern máta á Metal Market: m.a. tónlist, boli með uppáhalds sveitunum sínum, o.þ.h.

** FERÐATILHÖGUN

Lagt er af stað frá DGI-Byen við aðalbrautarstöðina í Köben að morgni þriðjudagsins 28. júlí!! Þetta er nauðsynlegt því að tónleikahald byrjar strax á miðvikudeginum. Brottförin til Wacken er kl 8:00 um morguninn. Ég mæli því með því að fólk sé komið til Köben a.m.k. daginn áður, eða mánudaginn 27. júlí.

Brottför frá Wacken er á sunnudeginum, 2. ágúst og áætlaður komutími í Köben er um 18:30 leytið. Menn hafa því getað stílað inn á að taka kvöldflugið heim, þó svo að ég mæli nú bara með því að menn slappi aðeins af í Köben og taki flugið heim á mánudeginum (og fari í góða langa sturtu á hótelinu sínu áður, hehe).

** VERÐIÐ

Rútuferðin í Danmörku er skipulögð af sænska fyrirtækinu Festivalbussen, og er einnig seld í Danmörku. Athugið að flugið til Kaupmannahöfn er fyrir utan þennan pakka og á ábyrgð hvers og eins fyrir sig að panta sér, enda flugframboð þangað fjölbreytt mjög og mismunandi hvað fólk vill vera lengi í Köben fyrir/eftir festivalið.

Boðið er uppá sameiginlegan pakka fyrir bæði rútuna til Wacken og miðann inná festivalið - hinn svokallaði "Classic" pakki. Fyrir þá sem vilja fá aðeins meira fyrir peninginn er hægt að kaupa "All in" pakka og fyrir þá sem þegar hafa tryggt sér miða á festivalið býðst mönnum að panta bara pláss í rútunni.

Innifalið í "classic" pakkanum er þetta:

-- Miði á Wacken hátíðina (augljóslega ekki fyrir þá sem panta bara rútuferðina). -- Aðgangur að öllum sviðum hátíðarinnar frá miðvikudeginum og áfram.

-- Rútuferð frá Köben beint á Wacken svæðið og til baka.

-- Grillveisla á þriðjudeginum (fólk kemur með sinn eigin mat á grillið, hægt að kaupa á leiðinni í rútuferðinni þegar stoppað er á landamærum Danmerkur og Þýskalands). Wacken sér um að redda grillum í World Metal Camp sem verða svo á sínum stað alla hátíðina og hægt verður að nota eftir samkomulagi við starfsmenn Festivalbussen.

-- Partýtjald. 5 x 8 m að stærð, sem við reisum í Íslendingakampinum. Þetta tjald er himnasending ef það rignir eða sólín skín af of miklum krafti.

-- Full Metal Service sem samanstendur m.a. af eftirfarandi:

- Tjaldsvæði og kostnaður vegna rusls.

- Aðgangur að sundsvæði Wacken. Skutla ferjar fólk að sundlauginni frá svæði rétt fyrir utan tjaldsvæðin.

- Engin takmörkun á þeim mat og drykk sem fólk getur haft með sér á tjaldsvæðið (Glerílát þó bönnuð).

- Eingöngu græn svæði fyrir tjaldsvæðin.

Verðið á "classic" pakkanum er 4.654 DKK

Innifalið í "All in" pakkanum er allt það sem er í "classic" pakkanum og að auki:

- Festivalstóll

- Sólgleraugu

- Kveikjari

- Festivalbussen poki

Verðið á "All in" pakkanum er 4.905 DKK en þessir hlutir eru afhentir á staðnum á Wacken af starfsmönnum Festivalbussen.

Bara rútupláss:

Fyrir þá sem hafa tryggt sér miða, er einnig hægt að panta bara pláss í rútunni og verðið fyrir þann pakka er 1.402 DKK en ef menn vilja bæta við "All in" innihaldinu úr fulla All in pakkanum er verðið á því 1.653 DKK (verður að velja það inn handvirkt). Þetta pláss veitir einnig aðgang að World Metal Camp í Íslendingakampinum.

* Fyrirfram uppsett tjöld og tjaldbúnaður til leigu

Festivalbussen býður ennfremur upp á tjöld til leigu, ef fólk vill sleppa því að hafa draslið með sér að heiman og verða þau sett upp fyrirfram fyrir ykkur á skikanum sem við verðum á með okkar tjaldbúðir. Boðið er upp á 1 - 4 manna tjöld. Verðið er sem hér segir:

- 1 manna: 810 DKK

- 2 manna: 1.032 DKK

- 3 manna: 1.254 DKK

- 4 manna: 1.843 DKK

Einnig er í boði að leigja svefnpoka, dýnur, stóla og annan búnað beint frá Festivalbussen og er það valið á síðunni þeirra.

** NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING

Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Þorsteini Kolbeinssyni.

Email: thorokol "hjá" gmail.com

Sími: 823-4830

Ef menn vilja skrá sig, þá fara menn á þessa síðu hérna og panta þann ferðapakka sem mönnum líst best á.

https://www.festivalbussen.com/is/events/wacken-open-air-iss/

Takið eftir að þið hreinlega bætið því við sem þið viljið í pöntunarferlinu. Fyrir þá sem hafa farið áður fer greiðslan fram í gegnum síðuna hjá þeim en ekki í gegnum mig. Praise the Lord!

** ALDURSTAKMARK

Eins merkilegt eins og það hljómar, þá setur Wacken ekkert eiginlegt aldurstakmark á hátíðina sína. Það eru þó nokkrar takmarkanir og eru þær eftirfarandi.

- Eldri en 18: Engar takmarkanir og ekkert vesen.

- 16 - 18 ára: Þurfa að fá leyfi forráðamanns til að fara í ferðina. Þurfa að fylla út einfalt skjal frá Festivalbussen þess efnis.

- Yngri en 16 ára: Leyfður aðgangur í fylgd með forráðamanni EÐA með undirskrifaða yfirlýsingu frá forráðamanni um leyfi ungmennisins til að fara á hátíðina þar sem tilgreindur er einstaklingur sem mun bera ábyrgð á ungmenninu á hátíðinni. Yfirlýsingu þessa má finna á hér. https://www.wacken.com/downloads/transfer_of_education_duties_woa.pdf Þetta er þýskt skjal (á ensku reyndar) og fylgir þýskum lögum.

- Miðað er við afmælisdag varðandi aldurstakmörkin.

- ATH!! Mikilvægt er þó, að einstaklingur sem ekki treystir sér til að standa á eigin fótum, rata um í ókunnugum borgum erlendis og bjarga sér, á ekkert erindi í ferð sem þessa. Ferðin útheimtir að ferðalangar bóki sitt eigið flug og gistingu í Köben og komi sér á brottfararstað rútunnar.

Þorsteinn

Flytjendur

  • Wacken Metal Battle Iceland
    Wacken Metal Battle Iceland
    WACKEN METAL BATTLE 2023: 22. APRÍL Á GAUKNUM

    Hvaða sveit spilar á WACKEN OPEN AIR í Þýskalandi?
  • Þorsteinn Kolbeinsson
    Þorsteinn Kolbeinsson

    If you send me a friend request and I don't know you, send me a message to introduce yourself.