Hannyrðastundir í Úlfarsárdal
Borgarbókasafnið I Menningarhús Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122, 113 Reykjavík Kort
þri. 01.09.2026 13:00
Ert þú algjör prjónasnillingur, byrjandi í hekli eða lengra kominn í krossaumi? Skiptir ekki öllu, samveran og félagskapurinn er gefandi.
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal býður upp á notalegan samastað til þess að hittast með handavinnuna, fá sér kaffi og spjalla um daginn og veginn alla þriðjudaga frá kl. 13:00-15:00.
Á safninu er úrval af bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í og grípa með sér heim.
Engin skráning - Öll velkomin!
Flytjendur
-
BorgarbókasafniðBorgarbókasafn Reykjavíkur er almenningsbókasafn á sjö stöðum - opið rými allra. Hvert og eitt safn h