Strútsstígur
Básar, Katrínartún 4, 105 Reykjavík Kort
lau. 04.07.2026 08:00
☀️Komdu með okkur á Strútsstíg í sumar!
Gangan hefst í Hólaskjóli en þaðan er um tveggja klukkustunda gangur í skálann við Álftavötn þar sem gist er fyrstu nóttina. Frá Álftavötnum er gengið með Svartahnjúksfjöllum í Hólmsárbotna og þar gefst jafnan tækifæri til að skola af sér ferðarykið í hinni rómuðu Strútslaug. Úr lauginni er gengið í Strútsskála þar sem gist er tvær nætur. Þann dag sem dvalið er í skálanum er gengið um einstakt umhverfi skálans. Á lokadegi liggur gönguleiðin um Mælifellssand í Hvanngil þar sem rúta tekur upp hópinn.
Brottför er frá Mjódd. Innifalið í verði er fararstjórn, rútuferðir, flutningur á farangri milli skála og allar skálagistingar. Grillveisla í Strútsskála er einnig innifalin þar sem þátttakendur hjálpast að með matinn.
Nánari upplýsingar; https://www.utivist.is/ferdir-og-dagskra/lengri-ferdir/vidburdur/6774/strutsstigur
Flytjendur
-
Útivist
www.utivist.is | Útivist er ferðafélag sem býður upp á fjölbreyttar ferðir um náttúru Ís