Daníel Bjarnason stjórnar Brahms
Hof Menningarhús | Hamraborg, Strandgata 12, 600 Akureyri Kort
sun. 21.02.2027 16:00
Daníel Bjarnason stjórnar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í flutningi tveggja af ástsælustu verkum Johannes Brahms: 1. sinfóníunni og Tvöfalda konsertinum fyrir fiðlu og selló.
Brahms er gjarnan talinn einn hinna þriggja stóru B-a tónlistarsögunnar — Bach, Beethoven og Brahms — og skipar þannig sess meðal áhrifamestu tónskálda vestrænnar tónlistar.
Einleikarar í Tvöfalda konsertinum eru hjónin Guðbjartur Hákonarson fiðluleikari og
Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari. Margir muna eftir mögnuðum leik Mörtu
í Eldborgarsal Hörpu þegar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flutti Joker – Live to Film til
heiðurs Hildi Guðnadóttur í kjölfar Grammy-, Óskars- og Emmy-verðlauna hennar. Marta
er dóttir Guðmundar Óla Gunnarssonar sem stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í 23
ár og má því segja að hún hafi alist upp með hljómsveitinni.
Flytjendur
-
SinfoniaNordIcelandic symphony orchestra
-
Daniel BjarnasonTónskáld og hljómsveitarstjóri sem hefur unnið með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
-
Guðbjartur Hákonarson
Fiðluleikari og styrkþegi 2023.
-
Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir
Sellóleikari