Vinnustofa í myndasögugerð fyrir 12-16 ára börn

Vinnustofa í myndasögugerð fyrir 12-16 ára börn

Listasafn Reykjavíkur | Kjarvalsstaðir, Flókagata 24, 105 Reykjavík Kort

mán. 06.07.2026 10:00

Íslenska Myndasögusamfélagið býður upp á vikulanga vinnustofu fyrir krakka í myndasögugerð í samstarfi við Rannís og Listasafn Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum.

Námskeiðið, sem er ætlað börnum 12-16 ára, er frítt en hámarksfjöldi þátttakenda er 20. Í boði verður kennsla í myndasögugerð - allt frá hugmyndagerð til textaskrifa sem leiða til fullkláraðrar myndasögu. Vinnustofan er hugsuð sem hluti af Kríukeppninni, sem er keppni barna og unglinga í myndasögugerð sem stendur yfir til 28. Ágúst.

Flytjendur

  • Íslenska Myndasögusamfélagið
    Íslenska Myndasögusamfélagið

    Íslenska Myndasögusamfélagið er nýtt félag sem stefnir á að efla menningu og iðnað íslenskra myndasagna á Íslandi, með viðburðum, námskeiðum og fleira.

  • RANNÍS
    RANNÍS
    Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk ýmissa samstarfsáætlana ESB.