Jazz við höfnina
Hafnartorg Gallerí, Geirsgata 17, 101 Reykjavík Kort
þri. 11.08.2026 19:00
Þriðjudagurinn 10. mars
Roberta Andersen
Þriðjudagurinn 14. apríl
Birgir Steinn og Sólrún Mjöll
Þriðjudagurinn 12. maí
Hróðmar Sigurðsson og Ingibjörg Turchi
Þriðjudagurinn 9. júní
Kristjana Stefánsdóttir, Tómas Jónsson og Birgir Steinn
Þriðjudagurinn 14. júlí
Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson
Þriðjudagurinn 26. ágúst
Jazzhátíð Reykjavíkur - flytjandi tilkynntur síðar
Þriðjudagurinn 8. september
María Magnúsdóttir og hljóðafæraleikari
Þriðjudagurinn 13. október
Tríó Þórdísar Gerðar Jónsdóttur
Þriðjudagurinn 10. nóvember
Sigríður Thorlacius, Ómar Guðjónsson og Tómas R. Einarsson
Þriðjudagurinn 8. desember
Silva og Steini
Flytjendur
-
Jazzhátíð ReykjavíkurJazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.
Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.