HÉDNA
Hof Menningarhús, Strandgata 12, 600 Akureyri Kort
fim. 13.08.2026 00:00
HÉDNA
Á Akureyri starfar fjölbreyttur hópur myndlistarmanna sem endurspeglar vöxt á sviði myndlistar. Myndlist nútímans er marglaga, í senn persónuleg, margslunginn og flókin. Viðfangsefnin fjölbreytt þar sem tekist er á við tilveru í flóknum heimi með aðferðum myndlistar. Ólík tjáningarform myndlistarinnar birtist okkur á þessari sýningu í verkum sextíu og eins félaga í Myndlistarfélaginu á Akureyri, sem veita okkur innsýn í myndheim sinn.
Myndlistarfélagið var stofnað í janúar árið 2008 og er eitt aðildarfélaga Sambands íslenskra myndlistarmanna. Í því eru nú rúmlega 100 myndlistarmenn, flestir búsettir á Akureyri eða á Norðurlandi, en allir myndlistarmenn geta sótt um aðild að félaginu óháð búsetu. Í félaginu er fjölbreyttur hópur ólíkra myndlistarmanna sem endurspeglar gróskuna í myndlist á landinu.
Myndlistarfélagið rekur Mjólkurbúðina, sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri og kappkostar að bjóða upp á framsæknar og fjölbreyttar sýningar erlendra og íslenskra listamanna ásamt því að sýna verk félagsmanna. Þetta er fjórða sýning félaga í Myndlistarfélaginu í Hofi.
Eftirtaldir eiga verk á sýningunni:
Aðalbjörg María Ólafsdóttir - Adda
Aðalsteinn Þórsson
Anna Gunnarsdóttir
Anna Þóra Karlsdóttir
Arna Guðný Valsdóttir
Ásta Bára Pétursdóttir
Bergþór Morthens
Björg Eiríksdóttir
Borghildur Guðmundsdóttir
Brynhildur Kristinsdóttir
Brynja Harðardóttir Tveiten
Dagrún Matthíasdóttir
Edda Söe
Egill Logi Jónasson
Elísabet Ásgríms
Erlingur Valgarðsson
Erwin van der Werve
Freyja Reynisdóttir
Fríða Karlsdóttir
Gillian Pokalo
Guðbjörg Ringsted
Guðmundur Ármann Sigurjónsson
Guðrún H. Bjarnadóttir
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
Guðrún Sigurðardóttir
Halldóra Helgadóttir
Hallgrímur Stefán Ingólfsson
Hekla Björt Helgadóttir
Helga Björg Jónasardóttir
Herdís Björk Þórðardóttir
Hjördís Frímann
Hlynur Hallsson
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
Hrefna Harðardóttir
Hrönn Einarsdóttir
Jóna Bergdal Jakobsdóttir
Jónasína Arnbjörnsdóttir
Jónína Björg Helgadóttir
Jónína Mjöll Þormóðsdóttir
Jonna Jónborg Sigurðardóttir
Joris Rademaker
Karl Guðmundsson
Karólína Baldvinsdóttir
Kristinn G. Jóhannsson
Kristján Helgason
Marsibil G. Kristjánsdóttir
Ólafur Sveinsson
Pia Rakel Sverrisdóttir
Ragnar Hólm Ragnarsson
Ragney Guðbjartsdóttir
Rebekka Kühnis
Rósa Kristín Júlíusdóttir
Rósa Njálsdóttir
Sara Sif Kristinsdóttir
Sigurður Mar
Sólveig Baldursdóttir
Stefán Bessason
Steinn Kristjánsson
Tereza Kocián
Thora Sólveig Bergsteinsdóttir
Vikar Mar
Flytjendur
-
Aðalsteinn Þórsson
Listamaðurinn sem málar í augsýn gesta.
-
Anna GunnarsdóttirAnna Gunnarsdóttir textíllistakona hefur unnið við þæfingu á ull í yfir þrjátíu ár. Hún skapar stóra skúlptúra úr þæfðri, íslenskri ull og hafa verk hennar verið sýnd víða um heim.
-
Ásta Bára Pétursdóttir
Artist known for her acrylic paintings focusing on daily life and human activities.
-
Bergþór Morthens
Listamaður sem vinnur á mörkum málverks og skúlptúrs.
-
Björg Eiríksdóttir
Fyrirlesari um verkið Skyn
-
Brynja Harðardóttir Tveiten
Myndlistarkona
-
Drengurinn FengurinnMargir segja að Drengurinn fengurinn sé half-beast, half-amazing. Hann er bæði ræmdur og alræmdur um allt land fyrir tónlistarsköpun og heilbrigt útlit. Að þessu sinni mun hann koma einn fram með rokkgítar og trommuheila!
-
Erlingur ValgarðssonListamaður
-
Fríða KarlsdóttirFríða Karlsdóttir (f. 1994) útskrifaðist af myndlistarbraut Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam í Hollandi 2020. Hún býr og starfar á Akureyri, þar sem hún er hluti af sjálfstæða listhópnum Kaktus.
-
Guðmundur Ármann Sigurjónsson
Myndlistarmaður
-
Hekla Björt Helgadóttir
Myndlistarmaður og skáld, verk hennar eru einlæg, hnyttin og draumkennd.
-
Jónasína Arnbjörnsdóttir
Myndlistarsýning
-
Karl Guðmundssonverkefnastjóri stórfjárfestinga hjá forsætisráðuneytinu
-
Karólína Baldvinsdóttir
Listamaður, útskrifaðist úr Myndlistaskólanum á Akureyri 2014, hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum.
-
Kristján Helgason
Listamaður, hefur búið og starfað á Akureyri frá 2008, hefur tekið þátt í listaverkefnum og samsýningum.
-
Rósa Njálsdóttir
Sýnir ný verk þar sem hugleiðsla, frelsi og óbeislaðar pensilstrokur taka við af tuttugu ára rýni.
-
Sólveig Baldursdóttir
Listamaður sem hefur unnið að ýmsum útilistaverkum og sýningum.
-
Stefán Bessason
Listamaður sem opnar sýningu á málverkum og grafíkmyndum.
-
Vikar MarMyndlistarmaður búsettur og starfandi á Hjalteyri við Eyjafjörð.