Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks
Háskolabíó | Salur 2, Hagatorg, 107 Reykjavík Kort
fös. 17.07.2026 20:00
Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks
Nú blása kaldir vindar í íslensku þjóðfélagi, samfélagsleg sundrung og áfengisverð aldrei hærra.
Af því tilefni hefur höfundur Nauðbeygðrar Messu Nýrra Tíma ákveðið að auka þjáningar
íslenskrar alþýðu enn frekar með öðru verki, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að koma í veg fyrir
það af hálfu Eflingar og Ingu Sæland, félagsmálaráðherra. Helga Brá Brimar býður áhorfendum
til fjarlæga konungsríkisins Moríu, þar sem konungurinn Belerfór hinn réttláti hefur látist af sárum
sínum í hinu heilaga stríði. Því marserar Hatrammus hinn grimmi með allan her sinn í átt að
Moríu til að setjast í tómt hásætið og eina von morískrar alþýðu er að Filippus krónprins taki við
krúnunni. En til þess þarf hann að ganga í hjónaband, því lögin eru skýr; ógift konungsefni
stendur til jafns við betlarasyni! Filippus getur hins vegar ekki hugsað sér að giftast enda plagar
hann sönn, viðurstyggileg og leynileg ást sem meinar honum að taka við kvenkostum hins
moríska heimsveldis. Bergamólíó kroppinbakur, göfugastur manna, fær það verkefni að gifta
prinsinn áður en Hatrammus þrammar með máttugan her sinn inn um borgarhlið Moríu og blóð
um götur rennur
Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks er skörp og ófyrirgefanleg ádeila á samtímann þar sem kaldhæðinn húmor og alvörugefni vegast á. Höfundur verksins hefur um árabil einbeitt sér að því að hlúa að og lækna veikgeðja líkama á Landspítalanum en hefur nú ákveðið að segja skilið við læknasloppinn og einbeita sér að langveikasta sjúklingi heilbrigðiskerfisins, þjóðarsálinni.
Ath. - Sýningin er bönnuð börnum undir 15 ára.
Höfundur
- Einar Baldvin Brimar
Leikstjórn, tónlist og hljóðhönnun
- Egill Andrason
Aðstoðarleikstjórn
- Tómas Arnar Þorláksson
Búningar
- Helga Brá Brimar
Ljós
- María Jóngerð Gunnlaugsdóttir
Leikarar
- Arnór Björnsson
- Freysteinn Sverrisson
- Gugga í Gúmmíbát
- Hólmfríður Hafliðadóttir
- Mikael Emil Kaaber
- Mímir Bjarki Pálmason
- Níels Thibaud Girerd
- Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
- Starkaður Pétursson
- Vilberg Andri Pálsson
Flytjendur
-
Egill Andrason
Tónlistarmaður
-
Tómas Arnar Þorláksson
Director of 'Askur og Embla sitja uppi í tré'.
-
Gugga í Gúmmíbát
Skemmtikraftur sem mætir í fyrsta skiptið á Selfoss.
-
Hólmfríður Hafliðadóttirleikkona í sýningunni
-
Mímir Bjarki Pálmason
Ljósahönnun
-
Níels Thibaud GirerdGestaatriði sem mun sýna bút úr nýju verki sínu “Níels er Napóleon”
-
Starkaður Pétursson
Leikari í sýningunni.