Reykjavík Jazz 25.-30. ágúst
Reykjavik, Bjargarstígur 3, 101 Reykjavík Kort
þri. 25.08.2026 19:00
Jazzhátíð Reykjavíkur
Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram dagana 25.-30. ágúst. Kvölddagskrá hátíðarinnar fer fram á Fantasíu (Vinnustofu Kjarvals), Norðurljósum, Hörpu, Austurbæ og í Iðnó Að auki verður barnadagskrá í Hannesarholti, tónleikar fara einnig fram á Jómfrúnni, Þingvöllum, Hafnartorgi Gallerýi. Fleiri staðir gætu bæst við.
Jazzpassinn veitir aðgang að allri dagskrá Jazzhátíðar Reykjavíkur 2026. Handhafar passans fá armbönd við upphaf hátíðar og geta í framhaldinu sótt alla tónleika án endurgjalds.
Dagskrá Jazzhátíðar 2026
Þriðjudagur 25. ágústFantasía (Vinnustofa Kjarvals)
- 19:00 – Tríó Sölva Kolbeinssonar – Collage (IS)
- 20:00 – Birgir Steinn & Sólrún Mjöll - Agata (IS)
- 21:00 – Andrés Þór Tríó – Relocate, útgáfutónleikar (IS)
Miðvikudagur 26. ágúst
Hafnartorg Gallerý
- 17:30 – Tríó Sigurðar Flosasonar (IS)
Harpa, Norðurljós
- 19:00 – Ingi Bjarni: Hope – útgáfutónleikar (IS/SWE)
- 20:00 – Kosmonauci (PL)
- 21:00 – Havanablús Tómasar R | Los Bomboneros (IS)
Fimmtudagur 27. ágúst
Þingvellir
- 12:00 - Tríó Alberts Sölva
MÍT (Skipholt 50d)
- 15:00 - Workshop
Harpa, Norðurljós
- 19:00 – Crossing Borders – útgáfutónleikar (IS)
- 20:00 – Tom Sochas Trio (UK/FR)
- 21:00 – Matti Klein Soul Trio (DE)
Föstudagur 28. ágúst
MÍT (Skipholt 50d)
- 15:00 - Workshop
Fríkirkjan í Reykjavík
- 17:15 – Föstudagsfílingur: Sigríður Thorlacius, Gunnar Gunnarsson, Jóel Pálsson & Birgir Steinn Theodórsson
Harpa, Norðurljós
- 19:00 – Frelsissveitin ft. Davíð Þór (IS)
- 20:00 – Look North (FR/UK)
- 21:00 – Tómas Jónsson / Magnús Trygvason Eliassen: Best á Flest (IS)
- 22:00 – María Magnúsdóttir – tónleikar til heiðurs söngkonum Rómönsku Ameríku (IS)
Laugardagur 29. ágúst
Alliance Francaise
- 12:00 - Joce Mienniel & Charles Vetter (FR)
- 12:00 & 13:30 – Jazzhrekkur – barnadagskrá (Sunna Gunnlaugs, Ingibjörg Fríða og Leifur)
Jómfrúin
- 15:00 – RGS kvintett
Austurbær
- 19:00 – Hljóð í ljóði – útgáfutónleikar
- 20:00 – LILJA (IS/NO)
- 21:00 – Jocelyn Mienniel & Charles Vetter (FR)
- 22:00 – Hist og (IS)
Sunnudagur 30. ágúst
Fríkirkjan í Reykjavík
- 14:00 – JazzhátíðarmessaÓháði söfnuðurinn
Óháði söfnuðurinn
- 17:00 – Heiðurstónleikar | Tómas R. Einarsson
Iðnó
- 19:00 – Tu ha? Tu bjö! (IS)
- 20:00 – Mikael Máni Quintet (IS)
- 21:00 – Anna Gréta, Silva Þórðardóttir & Ómar Guðjónsson (IS)
Flytjendur
-
Jazzhátíð ReykjavíkurJazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.
Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.