Messa með altarisgöngu

Messa með altarisgöngu

Grensáskirkja, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík Kort

sun 27. sep 2026 11:00

Messa fer fram í Grensáskirkju sunnudaginn 27. september nk. kl. 11:00. Kirkjukór Grensáskirkju syngur undir stjórn Ástu Haraldsdóttur. Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Gengið verður til altaris. Í upphafi messunnar munu leiðtogar Krakkasálmanna bjóða börnunum til sérstakrar dagskrá í safnaðarheimilinu. Krakkasálmarnir eru að hefja göngu sína í Grensáskirkju og verða á sama tíma og messa í vetur kl. 11. 

Guðspjallatexti dagsins fjallar um það er Jesús rekur út illan anda. Hann fjallar í þeirri frásögu um mikilvægi bænarinnar. 

Verið hjartanlega velkomin í messu og í krakkasálma í Grensáskirkju.