Málþing: Landbúnaður í evrópsku samhengi - reynsla Norðurlandanna
Hilton Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík Kort
fös. 14.08.2026 10:00
Bændasamtök Íslands boða til málþings föstudaginn 14. ágúst klukkan 10:00 á Hilton Reykjavik Nordica.
Á þinginu munu þrír sérfræðingar af Norðurlöndunum varpa ljósi á sína reynslu og afstöðu í tengslum við aðild að Evrópusambandinu og áhrif þess á landbúnað.
Fyrirlesarar
Esa Härmälä frá Finnlandi er einn reynslumesti sérfræðingur Norðurlanda á sviði landbúnaðar- og Evrópumála.
Bjørn Gimming er formaður norsku bændasamtakanna, Norges Bondelag, og einn áhrifamesti talsmaður landbúnaðar í Noregi.
Ingrid Rydberg starfar hjá sænsku bændasamtökunum, Lantbrukarnas Riksförbund (LRF), og hefur stýrt skrifstofu samtakanna í Brussel í hartnær tvo áratugi.
Flytjendur
-
Bændasamtök ÍslandsBændasamtök Íslands is an organization representing farmers in Iceland.