Slitnir Strengir What's The Craic! - Írskir dagar 2026
Akraneshöfn, Faxabraut, 300 Akranes Kort
þri. 30.06.2026 20:00
Slitnir Strengir telja í Írska daga með tónleikum á hafnarsvæðinu á Akranesi þann 30. júní. Efnisskráin samanstendur af keltneskum þjóðlögum þar sem hressandi jiggar og rælar blandast við fallegar söngballöður sem láta engan ósnortinn.
Tónleikarnir eru kjörið tækifæri til að fara í kvöldstundarferðalag til Írlands og koma sér í stuð fyrir Írska daga.
Húsið opnar 19:15 og Slitnir Strengir stíga á svið kl 20:00.
Miðasala hefst á tix.is 16. maí.
Ekki missa af þessum einstaka tónlistarviðburði.
Fiðluleikarar eru
Arna Pétursdóttir
Ása Katrín Bjarnadóttir
Gunnþórunn Valsdóttir
Harpa Lind Gylfadóttir
Helena Másdóttir
Hjördís Tinna Pálmadóttir
Hlín Guðný Valgarðsdóttir
Hrefna Berg Pétursdóttir
Hulda Halldórsdóttir
Kristín Norðkvist Ragnarsdóttir
Lena Gunnlaugsdóttir
Unnur Þorsteinsdóttir
Ylfa Flosadóttir
Stórnandi er Ragnar Skúlason
Píanóleikari er Flosi Einarsson
Bassaleikari er Sigurþór Þorgilsson
Trommuleikari er Eiríkur Guðmundsson
Gítarleikari er Eðvarð Lárusson
Panflautuleikari er Saidhbhe Eimlíe Ní Sheartáin Channáin
Flytjendur
-
Slitnir StrengirSlitnir Strengir er fiðlusveit frá Akranesi sem hefur verið starfandi frá 1997 í nánast óbreyttu horfi. Hljómsveitin spilar þjóðlaga tónlist frá hinum ýmsu löndum, og er einna helst þekkt fyrir sína útgáfu á keltneskum rælum og jiggum.