James Merry - Nodens, Sulis, Taranis
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti 12, 600 Akureyri Kort
sun. 11.10.2026 00:00
James Merry - Nodens, Sulis, Taranis
James Merry er breskur myndlistarmaður sem búið hefur og starfað á Íslandi í áratug. Hann er þekktastur fyrir útsaumaðar grímur og sem tíður samstarfsmaður Bjarkar Guðmundsdóttur í sjónrænni framsetningu hennar. Hann hefur unnið með stofnunum og listamönnum eins og V&A safninu í London, Gucci, Royal School of Needlework, Tim Walker, Tilda Swinton og Iris Van Herpen.
Í Listasafninu á Akureyri er til sýnis þrjár andlitsgrímur Merry, hver þeirra innblásin af ákveðnum rómversk-keltneskum fornleifafundi í Bretlandi. Verkin bjóða upp á samtímatúlkun á skarti valdsmanna frá járnöld – sem gefur innsýn í hversu heillaður Merry er af þessu sögutímabili og því svæði sem hann ólst upp á, í suðvesturhluta Bretlands. Sýnd verða upprunaleg verk auk mynda og skrásetningar á sköpunarferlinu.
Flytjendur
-
James MerryBreskur myndlistarmaður sem búið hefur og starfað á Íslandi í áratug.