Árstíðir - Hátíðartónleikar
Akureyrarkirkja, Eyrarlandsvegur, 600 Akureyri Kort
mán. 28.12.2026 20:00
Árstíðir - Hátíðartónleikar
Hljómsveitin Árstíðir heldur sína árlegu hátíðartónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 27. desember og í Akureyrarkirkju miðvikudaginn 30. desember.
Hátíðartónleikar Árstíða hafa verið haldnir á hverju ári frá árinu 2008 og hefur myndast stórskemmtileg hefð í kringum þá. Á tónleikunum leikur sveitin eigið efni í bland við vel valin hátíðar- og jólalög. Hljómsveitin verður nýkomin heim af tæplega mánaðar löngu tónleikaferðalagi í Evrópu í nóvember og desember - og má því búast við samstilltri sveit í feiknargóðu formi.
Árstíðum til halds og trausts á tónleikunum verða bassasöngvarinn Pétur Oddbergur Heimisson og franskur strengjadúett sem samanstendur af sellóleikaranum Guillaume Lagraviére og fiðluleikaranum Jean-Samuel Bez - en þeir koma reglulega fram með sveitinni á tónleikum erlendis.
Ekki missa af einstakri hátíðarstemningu með Árstíðum í Fríkirkjunni í Reykjavík og Akureyrarkirkju á milli jóla og nýars.
Flytjendur
-
ÁrstíðirIndie folk from Iceland
-
Pétur Oddbergur HeimissonBassasöngvari sem kemur fram með Árstíðir.
-
Guillaume Lagraviére
Sellóleikari í frönskum strengjadúett.
-
Jean-Samuel Bez
Fiðluleikari í frönskum strengjadúett.