HÉDNA
Hof Menningarhús, Strandgata 12, 600 Akureyri Kort
fös. 17.07.2026 10:00
Sýning sextíu og eins félaga í Myndlistarfélaginu á Akureyri í HOFI hjá Menningarfélaginu. (English below)
Á Akureyri starfar fjölbreyttur hópur myndlistarmanna sem endurspeglar vöxt á sviði myndlistar. Myndlist nútímans er marglaga, í senn persónuleg, margslunginn og flókin. Viðfangsefnin fjölbreytt þar sem tekist er á við tilveru í flóknum heimi með aðferðum myndlistar. Ólík tjáningarform myndlistarinnar birtist okkur á þessari sýningu í verkum sextíu og eins félaga í Myndlistarfélaginu á Akureyri, sem veita okkur innsýn í myndheim sinn.
Myndlistarfélagið var stofnað í janúar árið 2008 og er eitt aðildarfélaga Sambands íslenskra myndlistarmanna. Í því eru nú rúmlega 100 myndlistarmenn, flestir búsettir á Akureyri eða á Norðurlandi, en allir myndlistarmenn geta sótt um aðild að félaginu óháð búsetu. Í félaginu er fjölbreyttur hópur ólíkra myndlistarmanna sem endurspeglar gróskuna í myndlist á landinu.
Myndlistarfélagið rekur Mjólkurbúðina, sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri og kappkostar að bjóða upp á framsæknar og fjölbreyttar sýningar erlendra og íslenskra listamanna ásamt því að sýna verk félagsmanna. Þetta er fjórða sýning félaga í Myndlistarfélaginu í Hofi.