Shjówmenn - sirkussýning

Shjówmenn - sirkussýning

Klambratún, Klambratún, 105 Reykjavík Kort

lau. 25.07.2026 13:00

Sprellandi 40 mínútna sirkussýning úr smiðju Hringleiks.
Einhvers staðar lengst úti á ballarhafi eru tveir sirkuslistamenn að reyna að veiða hugmyndir. Þeir kasta á milli sín fiskileifum, djöggl áhöldum, hvössum augnaráðum, veiðineti og ýmsu fleira, og enginn veit hvert förinni er heitið. Í nýsirkussýningunni Shjówmenn kynnumst við tveimur trúðum sem takast á við efnisheim og menningararf sjómennskunnar með sprúðandi leikgleði sirkuslistanna. Sýningin verður sýnd úti og hentar áhorfendum á breiðum aldri og notast takmarkað við talað mál.
Hún verður sýnd aðeins tvisvar í sumar. Allt í boði Reykjavíkurborgar! Upplýsingar má finna í dagskrá Sumarborgarinnar.

Flytjendur

  • Hringleikur

    Sirkuslistafélagið Hringleikur var stofnað vorið 2018 af hópi sirkuslistafólks með það að markmiði að kynna Íslendinga fyrir fjölbreyttri sirkusmenningu.