Benjamín Gísli tríó á Múlanum

Benjamín Gísli tríó á Múlanum

Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

mið. 08.07.2026 20:00

Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með sumardagskrá sína með spennandi tónleikatvennu þriðjudaginn 7. júlí og miðvikudaginn 8. júlí kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum klúbbsins kemur fram píanóleikarinn Benjamín Gísli ásamt tríói sínu. Benjamín Gísli tríó flytur frumsamið efni eftir Benjamín ásamt völdum jazzlögum í nýjum útsetningum. Tónlistin er melódísk og grípandi, einkennist af hlýjum hljómum, opnum köflum og lifandi samspili. Hún hreyfir sig á mörkum norræns djass og klassískrar tónlistar, en býr jafnframt yfir viðnámi og óvæntum beygjum sem draga hlustandann inn í einstakan hljóðheim tríósins. Tríóið gaf árið 2023 út plötuna Line of Thought, sem hlaut alþjóðlega viðurkenningu. Eftir nokkurt hlé hlakkar tríóið til að kynna nýja tónlist fyrir áheyrendum.

Benjamín Gísli Einarsson er einn af fremstu jazz píanóleikurum landsins og hefur vakið athygli fyrir sinn lagræna stíl, tilfinningaríka spilamennsku og fágaðan tón. Þótt hann sé jazz

menntaður nær tónlist hans langt út fyrir þá skilgreiningu. Hún sameinar áhrif frá klassískri tónlist, kvikmyndatónlist og spuna kenndum köflum í anda Keith Jarrets. Fyrir Benjamín er píanóið ekki bara hljóðfæri, heldur leið til að kanna nýjar hugmyndir, miðla tilfinningum og skapa tengingar við áheyrendur. Tónlistin hans er síbreytileg, liggur einhvers staðar á milli forms og frelsis, hefða og nýsköpunar, og er alltaf í leit að einhverju nýju.

Benjamín Gísli Einarsson, píanó

Birgir Steinn Theódórsson, bassi

Einar Valur Scheving, trommur

Benjamín Gísli Trio

Benjamín Gísli Einarsson, píanó

Birgir Steinn Theódórsson, bassi

Einar Valur Scheving, trommur

The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 5200.

Spennandi sumardagskrá Múlans heldur síðan áfram á þriðjudags- og miðvikudagskvöldum fram í miðjan ágúst. Múlinn er á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.

Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.

Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.

Tónleikar Múlans fara fram í sumar á þriðjudags- og á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu

Flytjendur