Sara Magnúsdóttir kvartett - Múlinn Jazzklúbbur

Sara Magnúsdóttir kvartett - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa | Björtuloft, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

þri. 18.08.2026 20:00

ISK 5200.00
Miðar / Skráning
ISK 5200.00
Miðar / Skráning

Jóel Pálsson, saxófónn
Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar
Sara Mjöll Magnúsdóttur, hammond orgel
Einar Valur Scheving, trommur

Jazzklúbburinn Múlinn lýkur sumardagskránni að þessu sinni með tónleikum þar sem kvartett Hammondleikarans Söru Magnúsdóttur kemur fram. Þau mun flytja lög af nýlegri plötu þeirra, A Place to Bloom, sem kom út á seinasta ári ásamt nýju óútgefnu efni. Sara hefur verið búsett í New York um árabil en hefur þrátt fyrir það verið virk í íslenskri tónlistarsenu og komið reglulega til landsins. Hún var í ár valin bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum.

Kvartettinn skipa auk Söru, Jóel Pálsson á saxófón, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar, Einar Valur Scheving á trommur. Þau hafa unnið saman um árabil og komið fram saman nokkrum sinnum á seinustu 2 árum. Gestir mega búast við kvöldstund sem spannar frá blús til jazz, með góðu grúvi og grípandi laglínum.