Saga Íslands: 2. hluti
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti 12, 600 Akureyri Kort
fös. 03.07.2026 12:00
Saga Íslands: 2. hluti
Eiríkur Páll Sveinsson (1934-2017), háls-, nef- og eyrnalæknir, reyndi að hafa yfirsýn yfir framgang lífsins og heimsins, m.a. með því að prenta út internetið í árdaga þess. Til þess að forða upplýsingum frá glötun safnaði hann þeim saman, prentaði út og lét gorma. Eftir Eirík liggja 178 hefti. Í þeim kennir ýmissa grasa. Eiríkur skrifaði þessa hugleiðingu í eitt heftið: „Þar sem ég hef gaman af skráningu og hef nægan tíma, læt ég þetta bara verða til í huganum og set það svo hér á blöðin. Sennilega á enginn eftir að lesa þetta yfir, nema ég sjálfur. Vellíðanin við þessi skrif er fyrir öllu.“ Heftin á sýningunni útbjó Eiríkur á árunum 2000 til 2017.
Aðstandendur Open sýningarýmis aðlaga þessa sýningu, sem áður var sýnd í Norræna húsinu, sérstaklega fyrir sýningarsal Listasafnsins á Akureyri. Hún er unnin með góðfúslegu leyfi fjölskyldu Eiríks og í samstarfi við hönnuðinn Evu Árnadóttur, sem er eitt barnabarna hans.
Sýningarstjórar: Open sýningarými; Arnar Ásgeirsson, Örn Alexander Ámundason, Hildigunnur Birgisdóttir og Una Margrét Árnadóttir.
Flytjendur
-
Arnar Ásgeirsson
Listamaður sem vinnur með börnum í 5. bekk.
-
Örn Alexander Ámundason
Leiðbeinandi skúlptúrsmiðju sem stýrir vinnunni og leiðbeinir þátttakendum.
-
Hildigunnur Birgisdóttir
Listamaður