Uppspretta 2026 – Markaðstorg viðburða og hugmynda fyrir skóla- og frístundastarf

Uppspretta 2026 – Markaðstorg viðburða og hugmynda fyrir skóla- og frístundastarf

Listasafn Reykjavíkur | Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Kort

mið. 19.08.2026 13:00

Kennurum og starfsfólki leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva er boðið á Uppsprettu – lifandi vettvang þar sem fjölmargar stofnanir kynna spennandi viðburði, fræðslu, tól og vettvangsferðir sem styðja við skapandi og lifandi skóla- og frístundastarf. Athugið að um ókeypis viðburð er að ræða, ekki formlegt námskeið.

Menning – Listir – Tækni – Náttúra – Saga – Tilraunir – Vettvangsferðir – Tungumál – Viðburðir – Tól

Á dagskrá er kynning á fjölbreyttum tilboðum frá eftirfarandi aðilum auk örkynninga stofnanna

-Alþingi

-Árnastofnun

-Borgarbókasafn Reykjavíkur

-Borgarleikhúsið

-Borgarsögusafn Reykjavíkur

-Fjölskyldu og húsdýragarðurinn

-Grasagarður Reykjavíkur

-Hönnunarsafn Íslands

-Jafnréttisskólinn

-List fyrir alla

-Listasafn Einars Jónssonar

-Listasafn Íslands,

-Listasafn Reykjavíkur

-Miðja máls og læsis

-Miðstöð útivistar og útináms

-Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

-Mixtúra sköpunar og upplýsingaver

-Nýsköpunarmiðja menntamála

-RÚV-

-Sinfóníuhljómsveit Íslands

-Þjóðleikhúsið

-Þjóðminjasafn Íslands.

Léttar veitingar og almenn gleði í boði

Næg bílastæði í göngufjarlægð og góðar almenningssamgöngur.

Bílastæðahús Hafnartorg

Hittumst á Uppsprettu, eflum tengslanetið og fyllumst innblæstri fyrir skólaárið framundan – aðgangur ókeypis og öll velkomin!

Flytjendur