Jóga og skapandi dans fyrir 4-5 ára börn
Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugata 17, 600 Akureyri Kort
fim. 02.07.2026 10:30
Skapandi hreyfistund fyrir 4–5 ára börn þar sem áhersla er lögð á jóga og dans. Börnin fá að hreyfa sig á eigin forsendum, nota ímyndunaraflið og njóta hreyfingar og slökunar í öruggu og jákvæðu umhverfi. Stundin er 45 mínútur.
Viðburðurinn er skipulagður utandyra þar sem við vonumst til að njóta sumarsins saman. Ef veðrið ákveður annað verður viðburðurinn annaðhvort færður um einn dag eða haldinn inni í barnadeild Amtsbókasafnsins. Nánari upplýsingar verða birtar á samfélagsmiðlum.
Kennarar eru Arna Sif Þorgeirsdóttir og Ingunn Elísabet Hreinsdóttir.
Enginn aðgangseyrir. Takmarkað pláss í boði svo mikilvægt að skrá sig á danssetrid@danssetrid.is
Flytjendur
-
Arna Sif Þorgeirsdóttir
Kennari með reynslu og menntun innan listdansins.
-
Ingunn Elísabet Hreinsdóttir
Kennari með reynslu og menntun innan listdansins.
-
Listasumar á AkureyriFjölbreyttar uppákomur og upplifanir á Listasumri.