Dagsferð á Fimmvörðuháls

Dagsferð á Fimmvörðuháls

Katrínartún 4, Katrínartún 4, 105 Reykjavík Kort

lau. 18.07.2026 07:00

Í þessari ferð er leiðin gengin á einum degi. Lagt er af stað á laugardagsmorgni með rútu frá Mjódd (sunnan við bíóið og vestan við Breiðholtskirkju kl. 07:00 og keyrt að Skógum þar sem gangan hefst. Gengið er yfir hálsinn og niður í Bása þar sem rútan bíður og rekur ferðalanga beint aftur í bæinn.

Hér er hægt að skrá sig í ferðina https://www.utivist.is/ferdir-og-dagskra/vidburdur/6751/fimmvorduhals-dagsferd

Hálsinn á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls nefnist Fimmvörðuháls. Á síðari árum hefur leiðin um hálsinn, á milli Skóga og Þórsmerkur verið ein af vinsælustu gönguleiðum hér á landi. Leiðin sem farin er liggur frá Skógum og upp meðfram Skógaheiði og efst á hálsinum er skáli Útivistar, Fimmvörðuskáli. Frá Skógum upp að Fimmvörðuskála er um 5-6 klst ganga. Gengið er frá sjávarmáli og upp í 1100 m hæð.

Frá Fimmvörðuskála er víðsýnt í austur til Mýrdals og niður eftir hálsnium.

Frá skálanum er gengið um jökulfannir og ása, gegnum gosstöðvarnar og niður Bröttufönn.

Af norðanverðum hálsinum, í góðu skyggni er ógleymanlegt útsýni yfir Emstrur, Torfajökulssvæðið og yfir Landmannaafrétt. Frá Bröttufönn er haldið um Heljarkamb og farið eftir Kattahryggjum og niður í Strákagil og í Bása þar sem göngunni lýkur. Búast má við að gangan taki í heild sinni um 10 klst. Heildarvegalengd er um 25 km.

Flytjendur

  • Útivist
    Útivist

    www.utivist.is | Útivist er ferðafélag sem býður upp á fjölbreyttar ferðir um náttúru Ís