Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni
Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Kort
mið. 01.07.2026 14:00
Alla miðvikudaga í sumar bjóðum við á Bókasafni Kópavogs, bæði á aðalsafni og Lindasafni, ásamt Náttúrusafni upp á sumarsmiðjur frá kl. 14:00 til 17:30, þar sem dýr og náttúra verða í sviðsljósinu.
Komdu og búðu til dýragrímur, dýrafígúrur, litaðu skemmtilegar söguhetjur eða taktu þátt í lista- og náttúrusmiðjum. Smiðjurnar verða rúllandi og mun hver smiðja bjóða upp á eitthvað af ofantöldu.
______________________________________
Þá verður umhverfisofurhetjan í gangi í allt sumar þar sem börn geta leyst umhverfistengd verkefni og fengið verðlaun.
Sumarlesturinn verður að sjálfsögðu á sínum stað þar sem börn geta farið í ævintýraferð með Gúnda geit.