Línudagurinn

Línudagurinn

Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugata 17, 600 Akureyri Kort

mið. 15.07.2026 10:00

Línudagurinn

Fjölbreytt dagskrá verður í boði
Á hverju ári erum við með sérstakan dag til að halda upp á einhverjar bókmenntir t.d. Harry Potter og Múmínálfana síðustu ár. 15. júlí 2026 ætlum við að halda upp á LÍNUDAGINN í tilefni 80 ára afmælis sögunnar um Línu Langsokk í fyrra.
 
Línu þarf varla að kynna fyrir landsmönnum en hún er ástsæl persóna úr bókum Astrid Lindgren. Lína er þekkt fyrir rautt hár og fléttur, ósamstæða sokka, mikinn styrk, sjálfstæði og ævintýragirni. Hún býr ein á Sjónarhóli með apanum Herra Níels og hestinum sínum sem oft er kallaður Litli kall.
 
Fjölbreytt dagskrá verður í boði; ratleikur, sokkamálun, myndabás, leikir fyrir krakkana, sögustund og fleira sem verður auglýst þegar nær dregur.
 
Takið daginn frá, hlökkum til að sjá ykkur í Línu-stuði!

Viðburðurinn er styrktur af Listasumri 2026.
Viðburðadagatal Listasumars má finna á listasumar.is

Flytjendur

  • Línudagurinn
    Línudagurinn

    Línudagurinn

    Á hverju ári er Amtsbókasafnið með sérstakan dag til að halda upp á einhverjar bókmenntir t.d. Harry Potter og Múmínálfana síðustu ár.

    15. júlí 2026 ætlum við að halda upp á LÍNUDAGINN í tilefni 80 ára afmælis sögunnar um Línu Langsokk í fyrra.

  • Lína Langsokkur
    Lína Langsokkur

    Stórsýning um Línu Langsokk, ástsælasta leikverk fyrir yngstu kynslóðina.

  • Listasumar á Akureyri
    Listasumar á Akureyri

    Fjölbreyttar uppákomur og upplifanir á Listasumri.

  • Lína Langsokk

    Sýning á Línu Langsokk á íslensku.