Garðpartý á Hrísateigi 21 - tónlist, pylsur og ljós í hjarta
Hrísateigur 21, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Hrísateigur 21, 105 Reykjavík Kort
þri. 30.06.2026 19:30
Þriðjudagskvöldið 30. júní 2026 ætlum við að koma saman í garðinum við Hrísateig 21 og eiga notalega kvöldstund í tilefni Jónsmessu og sólstöðu.
Garðurinn opnar fyrir gesti kl. 19:30 og dagskráin stendur til um 21:45.
Á pallinum verða, eins og staðan er núna:
Hljómsveitin Sérfræðingar að sunnan og Guðrún Árný sem æltar að láta hverfið syngja saman.
Það verður því bæði kraftur, gleði og söngur í loftinu svona kvöld þar sem maður mætir með bros á vör og fer heim með eitthvað hlýtt í hjartanu.
Á svæðinu verður boðið upp á grillaðar pylsur frá SS og eitthvað gott meðlæti. Það er einnig möguleiki á að Ísbíllinn láti sjá sig, en það kemur betur í ljós þegar nær dregur.
Allt framlag tónlistarfólks og annarra sem koma að kvöldinu er gefið af hlýhug. Á staðnum verður posi frá Ljósinu, þar sem gestum gefst kostur á að styrkja þetta mikilvæga starf.
Komdu með góða skapið, taktu með þér vin, fjölskyldu eða nágranna, og njótum saman kvölds þar sem tónlistin, samveran og kærleikurinn fá að ráða ríkjum.
Hlökkum til að sjá ykkur á Hrísateigi 21.
Flytjendur
-
Sérfræðingar að sunnan
Flytja geðgóð hippalög og skylda tónlist
-
Guðrún ÁrnýSöngkona og píanóleikari