Brúðubíllinn - Afmælisveislan / The Puppet Car - The Birthday Party
Árbæjarsafn, Kistuhylur 4, 110 Reykjavík Kort
mán. 03.08.2026 14:00
Verið velkomin á sýningu Brúðubílsins, Afmælisveisluna í leikstjórn Aldísar Davíðs á Árbæjarsafni mánudaginn 3. ágúst, frídegi verslunarmanna kl. 14 🎉
Lilli api, Dúskur og fleiri skrautlegar persónur munu baka drulluköku fyrir afmælisbarnið.
Verkið er uppfullt af töfrum, glimmeri og fjörugum lögum. Jafnvel munu sokkapar og sápa bresta í söng!
Þessi sýning er fyrir alla aldurshópa. Á safninu er leikvöllur og alls konar útileikföng fyrir káta krakka.
Leikarar eru:
Hörður Bent Steffensen
Hugrún Ylfa
Ísak Óli Borgarsson
Gestum býðst til að taka myndir með brúðunum og Lilla apa eftir sýninguna.
Einnig verða litabækur, litir, bolir og peysur í öllum stærðum til sölu!
Ókeypis inn og öll velkomin!
Flytjendur
-
Safnfræðsla Borgarsögusafns
Fréttasíða fræðslustarfs Borgarsögusafns Reykjavíkur
Fræðslustarf Borgarsögusafns tekur mið af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, Aðalnámskrá og stefnu Reykjavíkurborgar sem og öðrum innlendum og alþjóðlegum stefnum í menningarmálum.
-
Borgarsögusafn Reykjavíkur / Reykjavík City Museum
Eitt safn á fimm frábærum stöðum. Borgarsögusafn heyrir undir Reykjavíkurborg.