Í smiðjunni er börnum frá 9-12 ára boðið upp á að vatnslita ævintýraheim þar sem ímyndunaraflið fær að ráða förum. Leikið verður með vatnsliti og gert tilraunir til að skapa lifandi veröld. Ævintýraheimurinn hefur engin takmörk og börnin eru hvött til skapandi hugsunar og að beita persónulegri tjáningu.
Leiðbeinandi smiðjunnar er myndlistarkonan Heiðrún Gréta Viktorsdóttir. Heiðrún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2015 og hefur mikla reynslu á því að kenna og leiðbeina börnum í skapandi listasmiðjum.
Smiðjan er fyrir börn 9-12 ára.
Þáttaka er ókeypis.
Nánari upplýsingar veitir:
Heiðrún Gréta Viktorsdóttir heidrun.greta.viktorsdottir@reykjavik.is
Skapaðu þinn eigin ævintýraheim
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
mið. 19.08.2026 16:00