Töfri Töfri

Töfri Töfri

Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort

sun. 20.09.2026 15:00

ISK 3900.00
Miðar / Skráning
ISK 3900.00
Miðar / Skráning

Hinn eini sanni Lalli töframaður er mættur aftur í Tjarnarbíó með glænýja sýningu!

Í gegnum árin hafa sýningar Lalla í Tjarnarbíó heldur betur slegið í gegn á meðal áhorfenda og fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir frumlega og skemmtilega nálgun á leikhúsið.

,,Töfri Töfri” er fjölskyldu og barnasýning ætluð leikhúsgestum frá leikskólaaldri og allt upp í langömmur og langafa, enda er sýningin stútfull af töfrum, gríni og gleði fyrir ÖLL.!!!


Lalli var aðeins 5 ára gamall þegar hann fékk fyrst áhuga á töfrum.

Í þessari einlægu sýningu býður hann áhorfendum í skemmtilegt ferðalag í gegnum líf sitt og alla þá töfra sem hafa á vegi hans verið.

Vinur Lalla mun einnig koma við sögu en það er enginn annar er áhættuatriða-þvottabjörninn hann RINGÓ!

Áhorfendur fá að kynnast Ringó á mjög sérstakkann hátt, því þeir munu heyra hvað Ringó þvottabjörn er að hugsa …en það er gert með glænýju og háþróuðu tækni-töfra-tæki sem Lalla töframaður hefur fundið upp og nefnist ,,Töfrandi tjáninga tækni tæki töframanns”.


Ef þér finnst gaman að hlæja, láta koma þér á óvart og eiga skemmtilega stund að þá er sýningin ,,Töfri Töfri” með Lalla töframanni fullkomin sýning fyrir þig og þitt fólk.

Hlökkum til að sjá ykkur!



Lengd sýningar: 50 min


Leikarar og handrit: Lárus Blöndal & Stefán Ingvar


Leikstjórn: Stefán Ingvar


Hljóð: Kristín Waage 


Lýsingarhönnuður : Ásta Jónína


Dramatúrg: Jónsi Hannesson


Búningar: Elma Bjarney


Leikmynd,sjónhverfingar og töfrar: Lárus Blöndal



Sýningin er ætluð leikhúsgestum frá leikskólaaldri og allt upp í langömmur og langafa




Flytjendur