George Harris - El Pueblo De Uno

George Harris - El Pueblo De Uno

Harpa | Norðurljós, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort

fim. 26.11.2026 20:00

„El Pueblo De Uno“ er fimmta sýning George Harris, og fylgir hún í kjölfarið á árangursríku margra ára tónleikaferðalagi með fyrri sýningu hans, „Hijo Único“, en uppselt var á hana í stórborgum um öll Bandaríkin, Rómönsku Ameríku og Evrópu.

George Harris á að baki meira en 20 ára feril sem uppistandari og var valinn besti grínistinn af Miami New Times árið 2023. Á síðasta ári sóttu rúmlega 65 þúsund manns sýningar hans á sviði. Þá hlaut hann nýverið Gold Creator Award frá YouTube fyrir að ná yfir einni milljón áskrifenda.

Með „El Pueblo De Uno“ stefnir George að því að láta okkur öll spegla okkur í fyndnum sögum sínum, óháð því hvaða þorpi eða borg við komum upprunalega frá. Þegar öllu er á botninn hvolft erum við öll afurð sömu vísananna og við ólumst upp við. Og þær mótuðu þær manneskjur sem við erum í dag, eftir að hafa lifað af tíunda og fyrsta áratuginn og tiskustrauma þeirra.

Mikilvægt:
⚡ Sýningin fer fram á spænsku.
⚡ Aldurstakmark: 13 ára 
⚡ Vinsamlegast sýnið þá tillitsemi að taka hvorki myndir né myndskeið meðan á sýningunni stendur. Gestum sem virða þessa reglu ekki verður gert að yfirgefa salinn.


Flytjendur