Verið velkomin á sýningu Fókus – Félags áhugaljósmyndara á Ljósmyndasafni Reykjavíkur á Menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst kl. 16-21. Ókeypis inn og öll velkomin!
Ljósmyndararnir á bakvið sýninguna verða á svæðinu til að spjalla um sýninguna og félagið.
Fókus á Menningarnótt
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 16:00
Götumyndir er fimmta sýningin í sýningaröð FÓKUS – Félags áhugaljósmyndara í Skotinu árið 2026.
„Vegir liggja til allra átta, á þeim verða skil;… ”. Þetta textabrot, úr ljóði Indriða G. Þorsteinssonar, gæti átt við götuljósmyndun. Um er að ræða vítt hugtak sem oft fangar hversdaglega atburði og athafnir í daglegu lífi ókunnugs fólks.
Faðir götuljósmyndunar, Henri Cartier-Bresson, lýsti henni þannig í viðtali: „Það er þetta skapandi brot úr sekúndu þegar þú tekur mynd. Augu þín sjá samsetningu eða tjáningu sem lífið býður upp á og þú verður að vita með innsæi hvenær á að smella af á myndavélinni. Það er augnablikið þegar ljósmyndarinn er skapandi.”
Sýnendur eru:
• Einar Valur Einarsson
• Einar Örn Jónsson
• Ingunn Mjöll Sigurðardóttir
• Jón Bjarnason
• Stefán Hrafn Jónsson
• Þóroddur Steinn Skaptason
Sýningin er hluti af sýningaröð FÓKUS í Skotinu árið 2026. Alls verða sjö sýningar haldnar yfir árið þar sem 47 ljósmyndarar sýna verk sín.
Jafnframt verður á skjá myndasyrpa frá Fókus félögum sem mun rúlla stöðugt allt kvöldið.
Viðburðurinn er hluti af dagskrá Borgarsögusafns á Menningarnótt.
Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.

Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.