Samvera - æfum íslensku í náttúrunni
Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort
lau. 05.09.2026 11:30
Samvera eru vikulegir viðburðir sem sameina íslenskunemendur og þau sem eru íslenskumælandi. Saman kynnumst við yfir kaffibolla og spjöllum í umhverfi sem er vinalegt og öruggt, á meðan við njótum útiverunnar.
Við munum kanna auðveldar gönguleiðir í kringum Gerðuberg. Öll velkomin sem hafa áhuga á útivist og langar að kynnast nýju fólki, þvert á tungumál.
Hvenær? Alla laugardaga 18. apríl - 30. maí og 5. september - 26. September, kl. 11.30 til 13.30
Hvar? Við hittumst á bókasafninu í Gerðubergi fáum okkur kaffi og spjöllum smá áður en við förum í léttan göngutúr í nágrenninu og í Elliðaárdalnum.
Athugið: Þegar veðrið er mjög slæmt munum við vera á bókasafninu og spila borðspil.
Gönguferðirnar verða leiddar af kennurum í íslensku sem annað mál.
Bókasafnið er á efri hæðinni í húsi við Gerðuberg 3-5 í Breiðholti. Strætóar: 3, 4, 12, 17 (stoppistöð: FB).'
Frekari upplýsingar:
Fanny Sissoko, Verkefnastjóri Inngildingar og Fræðslu
fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is
Flytjendur
-
BorgarbókasafniðBorgarbókasafn Reykjavíkur er almenningsbókasafn á sjö stöðum - opið rými allra. Hvert og eitt safn h