Sunnudagur til sælu - Guðsþjónusta / Serene Sunday - Church Service
Kistuhyl 4, 110 Reykjavík, Iceland,
sun. 26.07.2026 13:00
Verið velkomin á Árbæjarsafn sunnudagana 14. júní, 26. júlí og 23. ágúst kl. 13–16.
Þar gefst einstakt tækifæri til að kynnast fyrri tímum í lifandi umhverfi. Gestir geta kynnt sér fjölbreytt störf og daglegt líf fólks á fyrri tíð. Harmonikkuleikur mun óma um safnsvæðið og landnámshænur ganga þar lausar. 🐔
Guðsþjónusta verður í litlu safnkirkjunni kl. 14. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson þjónar fyrir altari.
Dillonshús Café verður opið og býður upp á ljúffengar veitingar í notalegu umhverfi.
Öll velkomin!
Aðgengi
Flestir gangstígar á safnsvæðinu eru malarstígar.
Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld.
Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Samgöngur og bílastæði
Næsta stoppistöð Strætó heitir Árbæjarsafn (1 mínúta gangandi).
Aðrar nálægar stoppistöðvar eru Laxakvísl og Fagribær (5–6 mínútna gangur).
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.
Öll bílastæði eru gjaldfrjáls.
//
📸 Vigfús Birgisson