Námskeið Tungumálatöfra

Námskeið Tungumálatöfra

Íþróttamiðstöðin Flateyri, Tjarnargata, 425 Flateyri Kort

þri. 04.08.2026 10:00

ISK 29500.00
Miðar / Skráning

Tungumálatöfrar er námskeið með áherslu á íslenskuörvun í gegnum listsköpun og leik fyrir börn. Boðið er upp á málörvandi umhverfi í gegnum skapandi kennsluaðferðir. Listsköpun og leikur eru höfuðáherslan í kennslunni og unnið markvisst að því að börnunum líði sem best í eigin skinni og öðlist sjálfstraust til að tjá sig á íslensku og styrki íslenskukunnáttu sína og sjálfsmynd með tónlistarsköpun, listaverkagerð og hreyfingu. Allt frá upphafi hefur tónlist leikið stórt hlutverk á námskeiðinu og myndlistarsköpun einnig átt sinn fasta sess. Í ár er einnig boðið upp á skapandi útivist.

Námskeið fer fram 4.-9. ágúst og lýkur á sunnudeginum með töfragöngu og hátíð þar sem forráðamenn og vinir eru velkomin að sjá afrakstur námskeiðsins. Kennt er frá 10-14.

Í boði eru tvö námskeið: Tungumálatöfrar fyrir 5–9 ára börn sem fram fer í Grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri. Töfraútivist fyrir 10-14 ára börn kennt í nágrenni Flateyrar.

Námskeiðið er sniðið að þörfum fjöltyngdra barna, en er opið fyrir öll börn.