Kyrrð á Klambra - Jóga nidra og gong slökun sumarið 2026

Kyrrð á Klambra - Jóga nidra og gong slökun sumarið 2026

Klambratún, Klambratún, 105 Reykjavík Kort

sun. 12.07.2026 14:00

Langar þig að gefa líkama og huga tækifæri til að slaka á í fallegu umhverfi undir berum himni? Í sumar býðst þér að taka þátt í ókeypis jóga nidra og gong slökun á Klambratúni. Tímarnir eru opnir öllum.
Jóga nidra, oft kallað „jógískur svefn“, er leidd slökun þar sem líkami og hugur fá djúpa hvíld. Þú kemur þér þægilega fyrir og fylgir rödd leiðbeinanda sem leiðir þig í gegnum öndunar-, vöðvaspennu- og núvitundaræfingar ásamt gong slökun.
✨ Engin fyrri reynsla af jóga eða jóga nidra er nauðsynleg.
✨ Tímarnir henta bæði byrjendum sem og lengra komnum.
✨ Aðgangur er ókeypis.

📍 Hvar? Klambratún, 105 Reykjavík. Nákvæm staðsetning er á horni Flókagötu og Lönguhlíðar (svæðið þar sem börn renna sér á sleða á veturna).
📅 Hvenær?
• Sunnudagurinn 28. júní kl. 14-15
• Sunnudagurinn 5. júlí kl. 14-15
• Sunnudagurinn 12. júlí kl. 14-15
Athugið að tímasetningar eru háðar veðri. Fylgist með á Facebook-síðu viðburðarins varðandi mögulegar breytingar eða frestanir eða með því að skrá þig á póstlistann sem má finna á www.inga.run
🧘 Hvað er gott að hafa með sér?
• Jógadýnu eða annað undirlag til að liggja á
• Teppi
• Púða undir höfuð og jafnvel einnig undir hnén
• Augnhvílu
• Fatnað við hæfi veðurs
Þú getur einnig verið með án þess að koma með nokkuð með þér.
Skráning er ekki nauðsynleg en mér þætti vænt um ef þú skráir "going" eða "interested" á facebook viðburðinum svo ég fái hugmynd um áhugann.
Umsjón með verkefninu hefur Inga Rún Björnsdóttir jógakennari.
Verkefnið er styrkt af Hverfissjóði Reykjavíkurborgar.
💙 Verið hjartanlega velkomin í stund kyrrðar, slökunar og endurnæringar á Klambratúni í sumar.

Flytjendur