Get together
Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Kort
fös. 17.07.2026 11:00
Get Together heldur alþjóðlegan fjölskyldu- og vinahitting á Bókasafni Kópavogs, á fyrstu hæð í Tilraunastofunni. Þetta er alþjóðlegur hittingur fyrir flóttafólk, hælisleitendur, innflytjendur og öll sem vilja félagsskap.
Viðburðurinn er bæði fyrir fjölskyldur og einstaklinga.
Í hverri viku munum við hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman eins og að mála, prjóna, föndra o.fl. Í Get together hittum við nýja vini og deilum sögum okkar í þægilegu og öruggu umhverfi.
Get Together er samstarfsverkefni milli GETA hjálparsamtök og Bókasafn Kópavogs.
Við munum bjóða upp á kaffi og með því!
Þessi viðburður er styrktur af Vinnumálastofnun.