eivør

eivør

Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

fös. 23.10.2026 19:00

Þann 23. október mun Eldborg fyllast af dulúð og draumkenndri tónlist þegar Eivör stígur á sviðið. Tónleikaferð hennar um Evrópu hefst í Færeyjum og á Íslandi.

Með nýja laginu “Healer” opnar Eivör dyrnar að nýjum kafla á ferlinum; kafla umbreytinga, berskjöldunar og styrks.

Eivör hefur síðan 2024 ferðast vítt og breytt um heiminn með plötuna “ENN” sem hefur notið mikilla vinsælda. Aðdáendum hefur fjölgað og hún vaxið í list sinni.

Eivör um nýútkomið lag “Healer”:

“Healer er samtal við yngri útgáfu af sjálfri mér, þá sem efaðist um allt og fannst hún aldrei vera nóg. Lagið býr í rýminu á milli þess að falla og finna fótfestu á ný. Það heldur í þá hugsun að jafnvel á þeim augnablikum sé eitthvað sterkara að byggjast upp hægt og rólega. Ég lagði hjartað mitt í þetta lag. Ég vona að það finni þig þar sem þú ert – og geti jafnvel veitt þér styrk og heilun.“

Ekki missa af Eivöru í Eldborg þann 23. október þar sem hún hefur Evróputúr með splunkunýtt efni í farteskinu!

Flytjendur

  • Eivör
    Eivör

    Konan sem syngur eins og fjöllin sjálf tali!

  • SENA
    SENA
    Sena er upplifunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæða viðburðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
  • Sena Live
    Sena Live

    Sena er upplifunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæða viðburðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki.