SVoM í sundi á Jazzhátíð Reykjavíkur

SVoM í sundi á Jazzhátíð Reykjavíkur

Sundlaug Vesturbæjar, , Reykjavík Kort

sun. 30.08.2026 12:00

SVoM í sundi á Jazzhátíð Reykjavíkur

Vesturbæjarlaug

Sunnudagurinn 30. ágúst kl. 12:00

Skólahljómsveit Vesturbæjar og miðbæjar mun halda tónleika í Vesturbæjarlaug sunnudaginn 30. ágúst kl. 12:00. Hljómsveitin mun leika undir stjórn Samúels Jóns Samúelssonar. Það verður notalegt að kíkja í sund og hlusta á hina frábæru skólahljómsveit SVoM. Seinna um daginn verður þétt dagskrá á Jazzhátíð Reykjavíkur en nánar má finna upplýsingar um hana á heimasíðu Jazzhátíðar Reykjavíkur.

Þessi viðburður er styrktur af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Viðburðurinn er hluti af dagskrá „Sundlaugasumars 2026” en verkefnið var sett var af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.

Flytjendur

  • Reykjavík Jazz Festival
    Reykjavík Jazz Festival

    25. - 30. ágúst 2026 / August 25th-30th 2026

    www.reykjavikjazz.is

  • Jazzhátíð Reykjavíkur
    Jazzhátíð Reykjavíkur

    Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.

    Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.