ÞÚFA LOGAR! Sköpun, lifandi tónlist og fjör á Akureyrarvöku

ÞÚFA LOGAR! Sköpun, lifandi tónlist og fjör á Akureyrarvöku

Þúfa Art Studio, Gránufélagsgata 46, 600 Akureyri Kort

lau. 29.08.2026 13:00

ÞÚFA LOGAR! Sköpun, lifandi tónlist og fjör á Akureyrarvöku

Götumarkaðsstemmning með lifandi tónlist, listasmiðjum, skottsölu og markaði

🔥 ÞÚFA LOGAR! 🔥

Laugardaginn 29. ágúst verður lífleg götumarkaðsstemning við Þúfu 46. Listamennirnir í Þúfu bjóða gestum og gangandi í heimsókn frá kl. 13–19 þar sem sköpun, tónlist og góð stemning verða í aðalhlutverki.

Frá kl. 13–17 verður boðið upp á fjölbreyttar listasmiðjur þar sem gestir geta meðal annars tekið þátt í microrakubrennslu, þrykkt á boli, málað á húsið og fleira. Á svæðinu verður einnig skottsala, markaður og grillaðar pylsur.

Frá kl. 16–19 tekur lifandi alþýðutónlist við á pallinum. Listamenn stíga á svið undir dagskrárstjórn Svavars Knúts og sjá til þess að stemningin haldist fram á kvöld.

Komdu við, skapaðu, skoðaðu, hlustaðu og njóttu Akureyrarvöku með okkur í Þúfu 46!

📍 Þúfa 46, Gránufélagsgötu 46
🗓️ Laugardagur 29. ágúst
⏰ Kl. 13–19

 Viðburður styrktur af Akureyrarvöku

Flytjendur