Verið velkomin í fjölskylduvæna smiðju sem þátttakendur læra einfaldar aðferðir við að móta blómapott úr leir. Einnig verður kennt að skreyta þá með leirlitum og "sgraffito" aðferðinni, þar sem skrapað er í leirlitinn til að draga fram teikningu og munstur. Að smiðjunni lokinni verða blómapottarnir sendir í brennslu í keramikofni og verða tilbúnir til afhendingar á bókasafninu um þremur vikum síðar. Smiðjan er haldin í samstarfi við Seljagarð, borgarbýli og mun Guðný Rúnarsdóttir myndlistakona og sjónlistakennari sjá um kennsluna.
Athugið að gert er ráð fyrir að foreldrar eða forráðamenn taki virkan þátt í smiðjunni og fylgi börnunum.
Þátttaka er ókeypis en það er takmarkað pláss og því er skráning nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411-6175
Leirum blómapotta
Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort
lau. 05.09.2026 13:30