Sterkari saman
Afrek, Skógarhlíð 10, 105 Reykjavík Kort
mán 12. okt 2026 19:30
Bústaðu viðburðinn!💪 STERKARI SAMAN.
Við ætlum að eiga kraftmikið kvöld saman þar sem Arnhildur Anna og Hildur Karen leiða okkur í gegnum æfingu og deila svo með okkur sinni sögu, þekkingu og reynslu af styrk, styrktarþjálfun og því að byggja okkur upp.
Hildur Karen er þjálfari með sérhæfingu í þjálfun kvenna á meðgöngu og eftir fæðingu. Hún stendur meðal annars að Afreksmömmum og Móðurkrafti og hefur á síðustu árum þjálfað þúsundir kvenna.
Arnhildur Anna er styrktarþjálfari og fyrrverandi afrekskona í kraftlyftingum. Hún er margfaldur Íslandsmeistari, keppti fyrir Íslands hönd á alþjóðlegum mótum og rekur í dag fjarþjálfunina ADDA þar sem hún hjálpar konum að verða sterkari og ná sínum markmiðum.
🕢 Viðburðurinn hefst kl. 19:30 – húsið opnar kl. 19:15.
Veitingar verða á staðnum og að svo bíður ykkar flottur goodie bag ✨
Við hlökkum til að eiga með ykkur skemmtilegt og styrkjandi kvöld! 💪