Listamannaspjall - Alfa Rós um sýninguna Á meðal þeirra í Gallerí Fold

Listamannaspjall - Alfa Rós um sýninguna Á meðal þeirra í Gallerí Fold

Gallerí Fold, Rauðarárstígur 14, 105 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 15:00

Alfa Rós tekur á móti gestum og gangandi milli kl. 15 til 16 og ræðir um sýningu sína Á meðal þeirra, sem nú stendur yfir í Gallerí Fold.
Alfa Rós Pétursdóttir er myndlistarkona sem vinnur aðallega með textíl og trefjar. Í verkum sínum rannsakar hún áferð, form og lit sem leiðir til að nálgast tilfinningalega og skynræna upplifun.
Hún sækir efnivið í hversdagsleikann, þar sem smáir og stórir atburðir, óvissa og áskoranir fléttast saman við samfélagslegar aðstæður og persónulega reynslu.
„Á þessari sýningu velti ég fyrir mér hvernig einstaklingurinn getur verið órjúfanlegur hluti af margmenni – samfélagi, hópi eða kerfi – og hvernig við erum samtvinnuð heildinni, en getum jafnframt upplifað okkur ósýnileg eða jafnvel týnd innan fjöldans. Þessi togstreita er tengd íslensku fjallalandslagi, þar sem form og yfirborð bjóða upp á bæði skýr og óljós mörk. Landslagið verður þannig myndlíking fyrir tilvist manneskjunnar innan stærri heildar – stöðugt til staðar, en ekki alltaf sýnileg.“