DEILDIN

DEILDIN

Hljómskálagarður, Hljómskálagarður 0, 101 Reykjavík Kort

lau. 08.08.2026 14:00

Pepsi-deildin, Úrvalsdeildin, Meistaradeildin, Enska-deildin, Spænska-deildin… en nú er komið að DEILDINNI. DEILDIN er deild sem inniheldur einungis eitt lið, einn þjálfara og áhorfendur. DEILDIN er dansverk í formi fótboltaleiks.
DEILDIN er 20 mínútna sýning sem verður sýnd á grasblettum miðborgarinnar í sumar. Sýningin hentar allri fjölskyldunni! (Það er ekkert tal og því auðvelt að skilja)
DEILDIN er styrkt af Dansverkstæðinu og Sumarborgin.