Hverafugl – KIMI Ensemble og nemendur LHÍ
Listasafn Árnesinga, Austurmörk 21, 810 Hveragerði
sun. 28.06.2026 17:00
KIMI Ensemble & nemendur LHÍ
Sunnudagur 28. júní kl. 17:00
KIMI Ensemble kemur fram á tónlistarhátíðinni Hverafugl sunnudaginn 28. júní kl. 17:00 í Listasafni Árnesinga.
KIMI Ensemble er margrómaður nútímatónlistarhópur með aðsetur í Kaupmannahöfn. Hópinn skipa Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmóníkuleikari, Katerina Anagnostidou slagverksleikari og Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir söngkona.
Fyrr á árinu hélt KIMI Ensemble vinnustofu fyrir tónsmíðanemendur Listaháskóla Íslands. Á tónleikunum verður hægt að sjá afrakstur vinnustofunnar og kynnast ferskum röddum í íslenskri samtímatónlist í flutningi framúrskarandi tónlistarfólks en KIMI mun flytja ný verk eftir tónsmíðanemendurna Pranav Ranjit og Sunnu Gunnlaugs. Einnig verða flutt sönglög eftir Ingunni Bjarnadóttur í nýjum útsetningum fyrir KIMI.
Frekari upplýsingar um hátíðina má nálgast á vefsíðunni:
https://www.hverafugl.com/
Miðaverð - KIMI Ensemble & nemendur LHÍ
Almennt miðaverð: 4.500 kr.
Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 3.000 kr.
Hátíðarpassi - Gildir á alla viðburði hátíðarinnar
Almennt miðaverð: 12.000 kr.
Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 8.000 kr.
Hátíðin er styrkt af Tónlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði Suðurlands, Hveragerðisbæ, Hótel Örk og Kjörís.
🎶
Flytjendur
-
KIMI ensemble
Includes Jónas Ásgeir Ásgeirsson (harmonika), Katerina Anagnostidou (percussion), and Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir (singer).
-
HverafuglTónlistarhátíð í Hveragerði / Music Festival in Hveragerði
-
Jónas Ásgeir Ásgeirsson
Hljóðfæraleikari, harmóníka
-
Katerina AnagnostidouPercussionist