Leikjadjamm á Húsavík / Húsavík Game Jam
Stéttin - Húsavík, Hafnarstétt 3, 640 Húsavík Kort
fös. 18.09.2026 14:30
Langar þig að búa til leik? Langar þig að kynnast leikjahönnun? Langar þig að kynnast öðrum sem hafa áhuga á leikjagerð?
Fyrir hverja er leikjadjammið á Húsavík?
Fyrir ungt fólk sem er forvitin um leikjagerð, nýsköpun og hvernig leikjavæðing getur nýst í alls konar hugmyndavinnu!
Þátttaka er ókeypis en skráning og viðvera nauðsynleg: https://hradid.is/leikjadjamm/
Hvenær? Föstudaginn 18. september og laugardaginn 19. september 2026
Nánar um leikjadjamm 🤖
Á leikjadjammi kemur fólk saman úr ýmsum áttum og býr saman til leik eða leikjaupplifun frá grunni. Fólk mætir saman eða kynnist á staðnum, fær hugmyndir og framkvæmir hana svo á tveimur dögum.
Það þarf reynslu úr öllum áttum til að búa til leiki. Fólk með skapandi hugsun, rithöfundar, teiknarar, grafískir hönnuðir, tónlistarfólk og forritarar vinna saman.
Saman gerið þið tölvuleiki, borðspil og jafnvel útileiki!
Það geta allir búið til leiki, líka þú!
Við hjálpum ykkur af stað og gefum ykkur ráð um hversu stór hugmyndin getur verið til að þið náið að sýna hana í lok laugardags.
- - - - - - - -
Flytjendur
-
STEM ÍslandMarkmið STEM Íslands er að efla STEM menntun á Íslandi
-
Game Makers IcelandA festival celebrating game development and creativity.
-
Hraðið miðstöð nýsköpunarHraðið – miðstöð nýsköpunar er líflegur heimavöllur frumkvöðla, stofnana og fyrirtækja sem vinna að nýsköpun með einum eða öðrum hætti.