Hið óviðjafnanlega útikaraoke Hits & Tits snýr aftur!!!
Sungið undir berum himni og hjörtun opnuð.
Við verðum á nýjum stað: Á Steinbryggjunni við Skáldatorg - á mótum Tryggvagötu og Pósthússtrætis miðja vegu milli Kolaportsins, Tívolís og Bæjarins bestu.
Karaokestýrur að þessu sinni eru systurnar Margrét Erla og Vigdís Perla Maack. Við verðum með sápukúlur, konfettí, vindvélar,(náttúrulega og með batteríi) og annað props.
Skráning fer fram á staðnum og vinsamlega athugið að ekki komast öll lög að. Það er ekki fyrstir koma fyrstir fá, heldur verður lögum raðað eftir kostgæfni og skemmtanagildi. Sýnum kurteisi og þolinmæði!
Viðburðurinn hlaut styrk úr Menningarnæturpotti Landsbankans og er gerður í samstarfi við Kolaportið og Tívolí. Luxor sér um græjumál.
Við hvetjum gesti að nýta sér fjölda veitingastaða í kringum karaoke-ið að viðburði loknum: Tívolí, Hafnartorg, Hornið, Fjallkonan, Tres Locos, Sæta Svínið, Tapas Barinn, Apótek, Pósthús Mathöll - en minnum á að á flestum stöðum er sniðugt að panta borð á þessum degi.
Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.
-
Margrét Erla Maack
Burleskdrottning Íslands
-
Vigdís Perla Maack
Sundballetttími instructor
-
Hits & TitsMargrét Erla og Ragnheiður Maísól eru plötusnúðar, karaokedrottningar, uppistandarar og fullo