Daði Freyr

Daði Freyr

Lyst - Lystigarðurinn, Eyrarlandsvegur 30, 600 Akureyri Kort

lau. 18.07.2026 21:00

Daði Freyr á Sumar & bjórhátíð LYST 2026

Sumar & bjórhátíð LYST endar með stórum útitónleikum í Lystigarðinum þar sem Daði Freyr stígur á svið ásamt Sturla Atlas.

Þetta verður eitt af þessum kvöldum sem við viljum hafa í garðinum: sumar, bjórhátíð, tónlist, fólk saman og góð stemning undir berum himni.

Tónleikarnir fara fram laugardaginn 18. júlí kl. 21:00 við LYST í Lystigarðinum á Akureyri.

Armband á Sumar & bjórhátíð LYST gildir sem miði á tónleikana.

Forsala er hafin – forsöluverð 5.900 kr.

Komdu snemma, njóttu hátíðarinnar yfir daginn og vertu með okkur þegar kvöldið tekur við.

ATH. góð umgengni um Lystigarðinn er skilyrði fyrir svona viðburðum. Eyðilegging á plöntum ógildir miða án endurgreiðslu.

Styrktaraðilar eru:

Prentmet Oddi, Húsavík öl, Leyni, Saga travel, Akureyrarbær, Viking Brugghús, Teya, Hs kerfi, Penninn Eymundsson, Sæluhúsin, Hnýfill

Aldurstakmark er 18 ár,

Börn undir 18 í fylgd foreldra eða forráðamanna.

Flytjendur

  • Daði Freyr
    Daði Freyr

    Jólalög í partýútgáfum

  • Sturla Atlas
    Sturla Atlas
    From 101 Reykjavík, Iceland. Bookings: info@101derland.com