Jazz í Djúpinu // Moritz Christiansen Trio
Hornið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort
fim. 06.08.2026 20:30
Í sumar heldur saxófónleikarinn Moritz Christiansen í tónleikaferðalag um sitt fyrrum heimaland, Ísland, ásamt tríói sínu frá Hamborg. Í upphafi ferðarinnar mun tríóið vinna að nýrri tónlist, sem þau munu síðan flytja á ýmsum stöðum víðs vegar um landið og taka upp í hljóðveri í lokin. Tónlistin flokkast sem norrænn djass og "ambient" með áherslu á skýrar laglínur og það að segja sögur í gegnum tónlist.
Fyrstu tónleikar ferðarinnar verða á Jazz í Djúpinu.
Auk Moritz skipa tríóið þeir Alex Petratos trommuleikari og Anton Deyß gítarleikari. Þeir þrír hafa spilað mikið saman sem kjarni kvintetts Moritz í Hamborg.
- -
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 sumarið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.
Flytjendur
-
Jazz í Djúpinu
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 í Djúpinu sem er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu.
-
Iceland JazzInformation about the Icelandic Jazz and Improvised scene. News about album releases, concerts in Iceland, and concerts performed by Icelandic jazz musicians abroad // www.icelandjazz.is
-
Moritz Christiansen TrioA trio consisting of saxophonist Moritz Christiansen, bassist Krzysztof Maciejko, and drummer Marcus Kendellen, known for their improvisational music influenced by various backgrounds.